Aðalfundur Nesklúbbsins 2023 haldinn í gær

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins var haldinn í Hátíðarsal Gróttu í gær, þriðjudaginn 28. nóvember.  Fundurinn var fjölmennur í þetta skiptið þar sem rétt tæplega 100 félagsmenn mættu.

Helstu dagskrárliðir voru þeir að Þorsteinn Guðjónsson formaður klúbbsins gerði grein fyrir skýrslu stjórnar og þá gerði Guðrún Valdimarsdóttir, gjaldkeri grein fyrir reikningunum sem voru svo lagðir fram til atkvæðagreiðslu af fundarstjóra og voru þeir samþykktir samhljóða.

Helstu tölur úr rekstri klúbbsins voru að rekstrartekjur voru tæplega 164 milljónir  og rekstrargjöld rúmlega 138 milljónir.  Eftir framkvæmdir og fjárfestingar var hagnaður á starfsemi ársins 9.300 þúsund.  Nánar má sjá ársskýrslu og reikninga félagsins með því að smella hér

Á fundinum voru ákveðin félagsgjöld fyrir árið 2024 sem tók mið af um 10% hækkun að meðaltali í samræmi við almennar verðlagshækkanir,  hækkun á GSÍ félagsgjaldinu ásamt inneign á Nesvöllum sem var lögð fyrir fundinn.    Fundarstjóri bar tillöguna upp og var hún samþykkt samhljóða.  Félagsgjöld fyrir árið 2024 verða því eftirfarandi:

Tillaga frá stjórn NK að breyttum félagsgjöldum fyrir
tímabilið 2023 lögð fyrir aðalfund félagsins 29.11.2022
Að meðaltali 10% hækkun á félagsgjöldum
2024
Félagsgjald til rekstar 26 ára+ 108.000 kr
Aðildarfélagsgjald GSÍ 6.400 kr
Inneign í veitingasölu 8.000 kr
Inneign á Nesvöllum 5.000 kr
Félgsjald 26 ára og eldri samtals 127.400 kr
Félagsgjald til rekstrar 67 ára + 89.000 kr
Aðildarfélagsgjald GSÍ 6.400 kr
Inneign í veitingasölu 8.000 kr
Inneign á Nesvöllum 5.000 kr
Félagsgjald 67 ára og eldri samtals 108.400 kr
Félagsgjald til rekstrar 16-26 ára 72.600 kr
Aðildarfélagsgjald GSÍ 6.400 kr
Félagsgjald 16-25 ára samtals 79.000 kr
Félagsgjald 15 ára og yngri 53.000 kr

Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinunum.

Kosning stjórnar:

Þorsteinn Guðjónsson sitjandi formaður var einn í framboði til formanns fyrir næsta ár og hann því rétt kjörinn formaður til eins árs við miklar undirtektir fundargesta.

Í framboði til stjórnar voru fimm frambjóðendur sem sóttust eftir þremur sætum.  Að lokum fór svo að þau Ásgeir Bjarnason, Elsa Nielsen og Guðrún Valdimarsdóttir hlutu flest atkvæði að loknum kosningum og þau því rétt kjörin til stjórnarsetu til næstu tveggja ára.

Stjórn klúbbsins fyrir tímabilið 2024 verður því þannig skipuð:

Þorsteinn Guðjónsson, formaður

Stjórn:

Árni Vilhjálmsson
Ásgeir Bjarnason
Elsa Nielsen
Guðrún Valdimarsdóttir
Jóhann Karl Þórisson
Þórkatla Aðalsteinsdóttir