Innheimta félagsgjalda

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Eins og fram hefur komið stendur nú yfir innheimta félagsgjalda.  Allir sem völdu það að greiða félagsgjöldin með greiðsluseðlum eiga nú að hafa greitt þrjá greiðsluseðla hið minnsta.  Fyrir ykkur sem staðið hafa í skilum þurfið þið ekki að lesa lengra.

Hinsvegar eru þó einhverjir sem eru í vanskilum og reyndar nokkrir sem ekki hafa greitt neitt.  Þeim kröfum fylgja orðið dráttarvextir og viðkomandi jafnvel borist innheimtukröfur frá Motus.  Við hvetjum alla til að standa skil á þessum kröfum svo ekki safnist upp frekari innheimtukostnaður.

Þeir sem ekki hafa greitt neitt og ætla að hætta í klúbbnum mega vinsamlegast láta vita á netfangið nkgolf@nkgolf.is til að forðast fleiri innheimtubréf.  Það verður svo þannig að þeir sem ekki hafa greitt neitt og hafa ekki látið vita fyrir 1. apríl verða tekin af félagalista og nýjum boðið plássið.

Innheimtunefnd