KICK-OFF kvöld NK-kvenna

Nesklúbburinn

Kæru NK konur, 

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. 

Nú er formlegu vetrarstarfi klúbbsins lokið og munum við krýna púttdrottningu Nesklúbbsins 2017 á KICK-OFF kvöldinu okkar sem haldið verður í golfskálanum þriðjudaginn 2. maí kl. 18 

Ætlunin er að koma saman, skemmta okkur og borða létta máltíð.  Fara yfir mót sumarsins sem kvennanefndin stendur fyrir ásamt því að renna létt yfir reglur vallarins 

Boðið verður upp á tískusýningu frá versluninni Sport Company í Bæjarlind.  Við fáum að kynnast því nýjasta í golftískunni ásamt ýmsu öðru skemmtilegu 

Við viljum með þessu bjóða ykkur NK-konum upp á að styrkja tengslin og sameinast um kröftugt spilasumar, einnig bjóðum við nýja meðlimi klúbbsins sérstaklega velkomnar. 

Verð kr: 2500.-   

Skráning á www.golf.is eða með því að smella hér

Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar 

Bestu kveðjur,

Kvennanefndin
Fjóla og Bryndís