Úrslit í púttmótinu 9. apríl, heildarstaða og lokamótið

Nesklúbburinn

Sunnudaginn 9. apríl fór næst síðasta púttmót vetrarins fram í Risinu.  Línur eru nú farnar að skýrast í heildarkeppninni og eru tveir kylfingar sem eiga möguleika á að vinna til sigurs í henni.  Það eru þeir Ingi Þór Olafson og Rúnar Geir Gunnarsson og má búast við skemmtilegri keppni næstkomandi sunnudag þegar að síðasta púttmótið fer fram.

Púttmótið næsta sunnudag er eins og öll önnur púttmót einnig stakt púttmót þar sem að vegleg verðlaun eru veitt fyrir efstu sætin og eru því allir hvattir til að mæta.  Þá verður líka síðasti möguleiki til að tryggja sig inn í lokamótið sem mun hefjast í beinu framhaldi af hinu hefðbundna púttmóti eða um kl. 13.10.

Í þessu síðasta púttmóti verður einnig boðið upp á „næstur holu“ keppni þar sem að allir þátttakendur í púttmótinu fá tvö högg á einni af þeim glæsilegu par 3 brautum sem í boði eru í golfherminum.

Úrslit í púttmótinu 9. apríl urðu eftirfarandi:

Kvennaflokkur:

1. sæti: Rannveig Laxdal – 33 högg
2. sæti: Magndís Sigurðardóttir – 33 högg
3. sæti: Oddný Rósa Halldórsdóttir – 33 högg

Karlaflokkur:

1. sæti: Ingi Þór Olafson – 26 högg
2. sæti: Rúnar Geir Gunnarsson – 28 högg
3. sæti: Þórarinn Gunnar Birgisson – 31 högg

Heildarstaða:

Í lok vetrar verða einnig veitt verðlaun í heildarkeppni þar sem að 7 bestu mót hvers og eins telja.  Eftir 14 mót er staða 10 efstu eftirfarandi:

1. sæti: Rúnar Geir Gunnarsson – 70 stig
2. sæti: Ingi Þór Olafson – 61,5 stig
3. sæti: Þórarinn Gunnar Birgisson – 51 stig
4. sæti: Haukur Óskarsson – 50,5 stig
5. sæti: Guðjón Davíðsson – 46 stig
6. sæti: Friðrik Friðriksson – 43 stig
7. sæti: Kjartan Steinsson – 41 stig
8. sæti: Eyjólfur Sigurðsson – 38,5 stig
9. sæti: Sigurpáll Scheving – 25,5 stig
10. – 11. sæti: Hörður Pétursson – 21,5 stig
10. – 11. sæti: Arnar Friðriksson – 21,5 stig

Lokamót:

í lokamótið sem haldið verður sunnudaginn 23. apríl í framhaldi af síðasta púttmótinu í vor tryggja allir sér þátttökurétt sem lent hafa í þremur efstu sætunum hvern sunnudag.  Við útreikninga er það ekki kynjaskipt heldur eru bæði kyn saman í einum flokki. 

Í sviga má sjá í hvaða móti viðkomandi tryggði sér þátttökurétt.  Ef einhver hefur verið í þremur efstu sætunum í meira en einu móti kemur fram mótið sem viðkomandi var fyrst í efstu þremur sætunum.

Rúnar Geir Gunnarsson (1)
Kjartan Steinsson (1)
Þorkell Helgason (1)
Ingi Þór Olafson (2)
Friðrik Friðriksson (2)
Eyjólfur Sigurðsson (3)
Arnar Friðriksson (3)
Þráinn Rósmundsson (3)
Haukur Óskarsson (4)
Guðjón Vilbergsson (4) 
Gauti Grétarsson (5)
Þuríður Halldórsdóttir (5)
Þórarinn Gunnar Birgisson (6)
Sigurpáll Scheving (6) 
Rafn Hilmarsson (8)
Ástvaldur Jóhannesson (9) 
Hörður Pétursson (10)
Guðjón Davíðsson (10) 
Guðbjörg Jónsdóttir (11)
Arnfinnur Berthelsson (11)
Kjartan Óskar Guðmundsson (12) 

ATH: Birt með fyrirvara um allt hafi verið reiknað rétt saman