Konugolf á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Kæru dömur í Nesklúbbnum,

Takk fyrir, þær sem komu síðast í sunnudagspúttið í nýbyggingu Lækningaminjasafnins.  Við hvetjum ykkur til að mæta næsta sunnudag á milli kl. 10 og 12 og taka ein léttan 20 pútta hring.  Keppnin mun standa áfram eftirfarandi sunnudaga í april og það er ekki of seint að koma næstu 4 sunnudaga, 3. apríl, 10. apríl, 17. apríl og 24. apríl.

Kick-off kvöld, eins og við héldum í fyrra og tókst svo vel verður síðan endurtekið í golfskálanum þriðjudaginn 3. maí og þá verður pútt-drottning Nesklúbbsins krýnd ásamt fleiru öðru skemmtilegu.

Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn,

Kær kveðja,
Fjóla og Bryndís