Kríuvarp og gönguleiðin á milli 8. og 9. braut

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir, Póstlistar Aukaaðild

Kæru félagar,

Af gefnu tilefni viljum við taka fram að nú hafa kríurnar okkar orpið og því er afar mikilvægt hafa í huga að það er stranglega bannað að fara inn í kríuvarpið á 9. braut og fyrir aftan flötina á 6. flöt til að sækja boltann.  Það eru fallreitir við bæði kríuvörpin þar sem við látum nýjan bolta falla og er það án vítishöggs.

Annað sem við viljum biðla til ykkar og það snýr að gönguleiðinni frá 8. flöt yfir á 9. teig.  Þá eigum við að nota malbikaða göngustíginn (sjá mynd neðar) til þess að halda góðu flæði um völlinn.  Með því að skilja golfsettið eftir fyrir neðan glompuna sem er við flötina á 8. braut og „stytta okkur leið“ með því að ganga svo þvert yfir 5. brautina, er verið að tefja fyrir þeim sem eru að slá upphafshögg á bæði 8. braut og 5. braut.
Þegar við tökum 9 holur á Nesvellinum erum við að ganga u.þ.b. 4 kílómetra.  Við viljum meina að um það bil 150 metrar í viðbót ættu nú ekki að skipta miklu máli.  Einnig má vel vera að einhverjum finnist það kannski (óvart að sjálfsögðu) ekkert mál að stytta sér leið þarna yfir þegar enginn er á 5. teig.  Það má vel vera að það gæti sloppið til í það skiptið en þá gæti það orðið til þess að, meðvitað eða ómeðvitað, snúist það upp í vana fyrir utan að þá sýnum við öðrum kylfingum á vellinum sem kannski ekki þekkja vel til að þetta sé leiðin – það viljum við nú alls ekki gera.  Tökum höndum saman, fylgjum leiðbeiningum og gerum leikinn skemmtilegri.

Með golfkveðju,
Vallarnefnd