Lokahóf Meistaramótsins fer fram núna á laugardaginn, fljótlega eftir að síðustu flokkarnir klára leik. Byrjað verður á verðlaunaafhendingu kl. 19.00 og er sérstaklega óskað eftir að allir verðlaunahafar verði viðstaddir. Í framhaldinu verður borðhald og er skráning hafin (sjá neðar). Eigum saman notalega og skemmtilega kvöldstund og þegar líður á kvöldið mun trúbador keyra upp stemninguna fram á nótt.
Það verður HAPPY HOUR hjá MARIO frá kl. 16.00 – 18.30 og því um að gera að taka fordrykkinn í skálanum og fylgjast með síðustu ráshópunum koma í hús.
Matseðilinn má sjá hér á meðfylgjandi auglýsingu og er verð aðeins kr. 6.500
Í fyrra komust færri að en vildu. Það verður takmarkað sætaframboð og fer skráning fram á Golfbox (smella hér). Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofunni, senda tölvupóst á nkgolf@nkgolf.is og í síma 561-1930.
Verðlaunahafa hvetjum við sérstaklega til að mæta allavegana í verðlaunafhendinguna (helst samt allt kvöldið líka)

