Lokadagur til að skrá sig í Meistaramótið er í dag og lýkur skráningu kl. 22.00 í kvöld. Mjög góð þátttaka er komin í mótið og stefnir allt í glimrandi veislu og stemningu þar sem meira að segja veðurguðirnir stefna á að bjóða okkur upp á bjarta daga. Við hvetjum því alla sem ætla að taka þátt að skrá sig fyrir tímamörkin í kvöld.
Meistaramótsnefnd