Meistaramótið 2015 – skráning hefst á mánudaginn

Nesklúbburinn

Meistaramót Nesklúbbsins fer fram dagana 4. – 11. júlí.  Skráning í mótið hefst mánudaginn 22. júní og mun standa til fimmtudagsins 2. júlí kl. 22.00.  Að sjálfsögðu verður haldið í hefðina er skráninguna varðar og mun hún eingöngu fara fram í möppunni góðu sem staðsett verður í golfskálanum.  
Búið er að setja upp flokkaskiptingu og drög að rástímatöflu fyrir mótið sem má sjá hér á síðunni undir „Um NK/skjöl“.  Sú tafla miðast við þátttakendafjölda 2014 og eru drög en ekki endanleg uppröðun.  Reynt verður eftir fremsta megni að láta leikdagana standa en tímasetningar geta breyst þegar endanleg skráning fyrir mótið í ár liggur fyrir.