Mót númer þrjú á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Það er flott veðurspá fyrir sunnudaginn og mót nr. 3 í októbermótaröðinni veður þá að sjálfsögðu haldið.  Það verður svalt en þar sem foreldraráðið verður að sjálfsögðu með heitt á könnunni ættu allir að geta mætt, hitt góða félaga og tekið 9 holur.  Síðasta sunnudag var frábær mæting og vonast er eftir samskonar mætingu í þetta mót sem verður að öllu óbreyttu það næstsíðasta í ár.

Eins og venjulega er hægt að hefja leik á milli kl. 11.00 og 13.00.  Annars eru leikreglur í mótunum eftirfarandi:

Mótin eru innanfélagsmót þar sem leiknar verða 9 holur, punktakeppni með fullri forgjöf.  Þátttökugjald er kr. 1.000.

Allur ágóði mótaraðarinnar rennur óskiptur til æfingaferðar unglinga sem farin verður næsta vor.  Það er því um að gera að lengja tímabilið, taka þátt í skemmtilegum mótum til styrktar góðs málefnis og að sjálfsögðu að taka einn eða tvo félaga með.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hverju móti en einnig verða gefin stig fyrir fyrstu fimm sætin í hverju móti og mun stigahæsti kylfingurinn að mótaröðinni lokinni standa uppi sem sigurvegari og hljóta vegleg verðlaun.  Stigagjöfin verður eftirfarandi:

  1. sæti: 5 stig
  2. sæti: 4 stig
  3. sæti: 3 stig
  4. sæti: 2 stig
  5. sæti: 1 stig

Mótin verða haldin á hverjum sunnudegi út október svo framarlega sem veður leyfir og verður það tilkynnt hér á nkgolf.is eigi síðar en á föstudeginum fyrir hverja helgi hvort af móti verður.  Foreldraráð áskilur sér þó rétt til breytinga eftir það ef það metur aðstæður sem svo.