Mótaskráin 2022

Nesklúbburinn Almennt

Mótaskráin 2022 hefur nú verið birt hér á síðunni undir flipanum mótaskrá.  Þar má sjá öll mót sem haldin eru á vegum klúbbsins.  Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér mótaskránna og um leið að lesa ávallt fyrirkomulag mótanna sem birt er sérstaklega inni á golfbox undir „upplýsingar“ um hvert mót.

Meistaramótið hefst eins og áður sagði laugardaginn 25. júní.  Ecco Bikarkeppnin verður leikin með öðru sniði en venjulega þar sem fastir leikdagar verða fyrir hverja umferð (sjá dagskrá).

Svo minnum við á að félagsmenn hafi það í huga að þegar það skráir sig í mót er það búið að skuldbinda sig fyrir settan rástíma og skal eftir fremsta megni reyna að mæta á tilsettan tíma.  Afskráning í mót eða viðburð er heimiluð allt að sólahring fyrir mótið.

Mótanefnd