Það eru spilaðir tveir 18 holu pútthringir fyrir 500 kr. og mun sá betri telja. Veitt verðlaun fyrir hvern dag. Við ætlum að spila fram að páskum þannig að það eru alls 8 sunnudagar í boði. Veitt verðlaun fyrir hvern dag eins og áður sagði og svo er líka púttmótaröð þar sem verða veitt verðlaun þar sem fjórir bestu hringirnir telja í lokin.
Svo höldum við að sjálfsögðu áfram með vipp leikinn í hermi eins og í fyrra og þá þarf að taka með sér auka kylfur fyrir stuttu högginn og mæta tímalega. Öll stigin verða lögð saman í lokin þannig að það borgar sig að mæta sem oftast og safna stigum en minnum á að það eru líka veitt verðlaun fyrir hvert skipti.
Krýnum svo Pútt- og Vippdrottningar vetrarins á Kick-off kvöldinu í vor. Drögum einnig úr skorkortum – allar sem mæta eiga möguleika á vinningi. Vegleg verðlaun!
Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn – heitt á könnunni og gott að æfa púttin í hlýjunni. Munið að púttin og kippinn eru jafn mikilvæg og upphafshöggin!😁
Bestu golfkveðjur,
Kvennanefndin
