Nokkur sæti laus á námskeið á næstunni

Nesklúbburinn

Nokkur sæti eru laus á námskeið næstu daga og vikur.

 

Fluid Motion Factor hugarþjálfun – 2 klst (3 laus sæti)

Viltu læra leyndardóminn á bakvið það að vera í „zone-inu“? Geta spilað á þinni hámarksgetu í hvert skipti án þess að láta rangar hugsanir þvælast fyrir. Þá er Fluid Motion Factor fyrir þig.

Næsta námskeið: Föstudagur 8. júní kl. 12.00. Skráning á nokkvi@nkgolf.is

Verð: 7.000.- kr 

 

AimPoint -1,5 klst (3 laus sæti)

Viltu læra að lesa flatirnar eins og margir af bestu kylfingum heims? Þá er AimPoint námskeiðið fyrir þig.

Næsta námskeið: Föstudagur 15. Júní kl. 12.00. Skráning á nokkvi@nkgolf.is

Verð: 5.000.-

 

Stutta Spilið – 2 klst (1 laust sæti)

Komdu þér upp skotheldri aðferð í höggunum við flatirnar og lærðu 5 högga kerfið sem gerir þér kleift að velja einföldustu og árangursríkustu leiðina hverju sinni.

Næsta námskeið: Þriðjudagur 5. júní  kl. 17.30. Skráning á nokkvi@nkgolf.is

Verð: 7.000.- kr

 

Járnahöggin – 1 klst (2 laus sæti)

Lærðu hvaða þættir stjórna högglengdinni og stefnunni í brautarhöggum og að gera æfingar til að bæta þá þætti.

Næsta námskeið: Fimmtudag 7. Júní kl. 17.30. Skráning á nokkvi@nkgolf.is

Verð: 3.500.- kr

 

Teighöggin – 1 klst (3 laus sæti)

Lærðu hvaða þættir stjórna högglengdinni og stefnunni í teighöggum og æfingar til að bæta þá þætti.

Næsta námskeið: Fimmtudag 7. Júní kl. 19.00. Skráning á nokkvi@nkgolf.is

Verð: 3.500.- kr

 

Nýliðanámskeið – 5 klst. (2 laus sæti)

Viltu komast vel af stað. Læra grunnatriðin og hvernig er best að æfa sig í framhaldinu. Þá er nýliðanámskeiðið fyrir  þig.

Næsta námskeið er 12. og 13. júní kl. 17:30 til 20.00.  Skráning á nokkvi@nkgolf.is

Verð: 22.000.- kr