NTC Hjóna- og parakeppnin á laugardaginn – nokkur sæti laus

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Hin glæsilega og stórskemmtilega NTC hjóna- og parakeppni verður haldin á laugardaginn.   Það eru nokkur sæti laus og það er bara fyrstur kemur fyrstur fær – þetta er bara gaman og meira að segja engin gul viðvörun í kortunum.

Nánari upplýsingar og skráning í mótið má sjá á golfbox eða með því að smella hér. Skráningu lýkur á föstudaginn kl. 11.00.

Ath. það þarf að skrá báða einstaklinga inn í mótið á sama tíma svo allt sé á hreinu hver spilar með hverjum.