Öldungabikar NK á morgun

Nesklúbburinn

ALLIR ÞÁTTTAKENDUR VERÐA AÐ VERA MÆTTIR FYRIR KL. 17.00

Öldungabikarinn er nýtt mót fyrir eldri kylfinga Nesklúbbsins, karla og konur.  Leikið verður eftir holukeppnisfyrirkomulagi án forgjafar.  Leiknir verða 6 níu holu hringir, tveir á dag.  Keppendur raðast samkvæmt Monrad kerfi.  Leikdagar eru 4., 8 og 10. ágúst, ræst út frá kl. 17.00.

Allar konur og karlar í Nesklúbbnum sem eru eða verða 50 ára á árinu geta tekið þátt.  Keppendum er raðað í upphafi eftir forgjöf en síðan eftir vinningum.  Þeir keppa innbyrðis sem eru næstir í röðinni eftir hvern hring.  Sá vinnur sem er efstur á listanum eftir 6 hringi.

Veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið og til þess sem færir sig um flest sæti upp á við. 

Verðlaun: Gjafabréf frá ICELANDAIR

Skráningu lýkur í kvöld á golf.is.  ATH: rástímarnir á golf.is eru eingöngu fyrir skráningu í mótið, ræst verður út frá kl. 17.00 þegar búið verður að raða niður eftir Monrad kerfinu

þátttökugjald: kr. 2.000