Öldungabikarinn hefst í næstu viku

Nesklúbburinn

Öldungabikarinn er stórskemmtilegt innanfélagsmót fyrir kylfinga Nesklúbbsins, karla og konur.  Leikið verður eftir holukeppnisfyrirkomulagi án forgjafar.  Leiknir verða 6 níu holu hringir, tveir á dag.  Keppendur raðast samkvæmt Monrad kerfi.  Leikdagar eru 20., 23. og 26. júlí, ræst út frá kl. 17.00 nema sunnudaginn 26. júlí er ræst út kl. 14.00.

Allar konur og karlar í Nesklúbbnum sem eru eða verða 50 ára á árinu geta tekið þátt. Keppendum er raðað í upphafi eftir forgjöf en síðan eftir vinningum.  Þeir keppa innbyrðis sem eru næstir í röðinni eftir hvern hring.  Sá vinnur sem er efstur á listanum eftir 6 hringi.

Veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið og til þess sem færir sig um flest sæti upp á við

Þátttökugjald kr. 4.000 og er innifalið súpa og brauð að leik loknum síðasta daginn

ATH: Æskilegt er að þeir sem skrá sig til leiks geti leikið alla hringina 6.

Skráning fer nú fram á golfbox og er nóg að skrá sig eingöngu í fyrsta mótið – hægt er að skrá sig hér.

Skráningu lýkur laugardaginn 17. júlí kl. 18.00