Öldungabikarinn hefst í næstu viku

Nesklúbburinn

Öldungabikarinn er stórskemmtilegt mót fyrir kylfinga Nesklúbbsins, karla og konur.  Leikið verður eftir holukeppnisfyrirkomulagi án forgjafar.  Leiknir verða 6 níu holu hringir, tveir á dag.  Keppendur raðast samkvæmt Monrad kerfi.  Leikdagar eru 24., 27., og 30. júlí, ræst út frá kl. 17.00 nema sunnudaginn 30. júlí er ræst út kl. 14.00.

Allar konur og karlar í Nesklúbbnum sem eru eða verða 50 ára á árinu geta tekið þátt. Keppendum er raðað í upphafi eftir forgjöf en síðan eftir vinningum.  Þeir keppa innbyrðis sem eru næstir í röðinni eftir hvern hring.  Sá vinnur sem er efstur á listanum eftir 6 hringi.

Veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið og til þess sem færir sig um flest sæti upp á við

Þátttökugjald kr. 3.500 og er innifalið súpa og brauð að leik loknum síðasta daginn

Skráning fer nú fram á golf.is og er nóg að skrá sig eingöngu í fyrsta mótið