OPNA NESSKIP – skráning hafin

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

laugardaginn 3. júní, verður haldið opið 18 holu mót á Nesvellinum þar sem allur ágóði rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins. Mótið er haldið í samstarfi við NESSKIP.

Leikið verður eftir punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3 holum.

Mótið er opið öllum kylfingum.

Hámarksforgjöf gefin: 28.

VERÐLAUN:

PUNKTAKEPPNI

1. sæti: 30.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2023
2. sæti: 20.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2023
3. sæti: 15.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2023

BESTA SKOR:

1. 30.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2023

NÁNDARVERÐLAUN:

2./11. braut: 10.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2023
5./14. braut: 10.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2023
9./18. braut: 10.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabfréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2023

Skráning og frekari upplýsingar á Golfbox (smella hér) og stendur til föstudagins 2. júní kl. 15.00.