Opna Nesskip – úrslit

Nesklúbburinn Almennt

OPNA NESSKIP mótið fór fram á Nesvellinum um helgina.  Mótið var 18 holur þar sem leikið var eftir punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig voru veitt nándarverðlaun á par 3 holum.  Allur ágóði af mótinu rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins.

Helstu úrslit í mótinu voru eftirfarandi:

Punktakeppni:

  1. sæti: Hjalti Garðar Matthíasson, NK – 44 punktar
  2. sæti: Pétur Orri Þórðarson, NK – 41 punktur
  3. sæti: Oddný Ingiríður Yngvadóttir, NK – 39 punktar

Besta skor: Nökkvi Gunnarsson, NK – 69 högg

Nándarverðlaun:

2. braut: Guðmundur Gíslason
5. braut: Elsa Nielsen
9. braut: Magnús Máni Kjærnested

Vinningshafar geta nálgast verðlaun sín á skrifstofu klúbbsins