Púttmót á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Það verður geggjað púttmót á sunnudaginn í Risinu eins og alla aðra sunnudaga.  Láttu þetta ekki framhjá þér fara og láttu sjá þig.

Hægt er að hefja leik í púttmótinu á milli kl. 11.00 – 13.00 og eru allir félagsmenn hvattir til að mæta, taka einn pútthring og fá sér kaffisopa.  Þátttökugjald aðeins kr. 500.-

Verðlaun fyrir efstu sætin í bæði karla- og kvennaflokki í púttmótinu eru:

1. sæti: Klukkutími í golfherminum og hálftími í Flightscope höggnemanum
2. sæti: Klukkutími í golfherminum
3. sæti: hálftími í Flightscope höggnemanum