Púttmót á sunnudaginn – allir félagsmenn velkomnir

Nesklúbburinn

Eins og venjulega verður púttmót á sunnudaginn á milli kl. 11.00 og 13.00.  Undanfarna tvo sunnudaga hefur verið frábær mæting og eru allir félagsmenn hvattir til þess að mæta, taka einn hring og fá sér svo kaffisopa.

Verðlaun fyrir efstu sætin í bæði karla- og kvennaflokki.

1. sæti: Klukkutími í golfherminum og hálftími í Flightscope höggnemanum
2. sæti: Klukkutími í golfherminum
3. sæti: hálftími í Flightscope höggnemanum

Reglurnar eru eftirfarandi:

* Leiknar eru 18 holur og kostar hver hringur kr. 500
* Óheimilt er að leika „keppnishringinn“ áður en leikur hefst en heimilt verður að hita upp eins og hver og einn vill.
* Heimilt er að spila fleiri en einn hring hverju sinni og kostar þá hver aukahringur kr. 500 en eingöngu besti hringurinn telur.
* Hægt er að hefja leik á milli kl. 11.00 og 13.00
* Verði tveir eða fleiri jafnir í verðlaunasætum telja fyrst seinni 9, svo síðustu 6, þá síðustu 3 og að lokum síðasta holan.  Verði keppendur ennþá jafnir verður varpað hlutkesti. 

Nánari reglur um púttmótin má sjá á eftirfarandi slóð: http://nkgolf.is/Article/fyrsta_pttmti__morgun_2017_01_07_13_28_50