Skemmtilegasta mót sumarsins framundan

Nesklúbburinn

Hið bráðskemmtilega Jónsmessumót verður haldið föstudaginn 21. júní nk.  Í þessu móti er það hvorki getan né metnaðurinn sem ræður ríkjum heldur er það gleðin og góða skapið því þetta er bara gaman. Ræst verður út af öllum teigum kl. 19.00 og verður happy-hour í veitingasölunni frá klukkan 17.30.

Leikið verður eftir texas-scramble fyrirkomulagi á léttu nótunum þar sem margt verður brallað, m.a. afbrigðilegar holustaðsetningar, nándarverðlaun á  9. braut, lukku-púttholan og margt, margt fleira.

Að sjálfsögðu verður þema eins og venjulega og nú er það klassískt HATTAÞEMA.  Sérstök verðlaun verða veitt fyrir skrautlegasta hattinn. 

Að móti loknu verður svo standandi hlaðborð að hætti Hödda og Mario ásamt verðulaunaafhendingu.

MÓTANEFND DREGUR SAMAN Í LIÐ.

VINSAMLEGAST SKRÁIÐ YKKUR TÍMANLEGA OG MÆTIÐ HIÐ MINNSTA HÁLFTÍMA FYRIR LEIK TIL AÐ AUÐVELDA ALLA VINNU MÓTANEFNDAR.

Aldurstakmark í Jónsmessumótið og mat er 20 ára

Mót og matur = kr. 4.500
Aðeins mót = kr. 2.500
Aðeins matur = kr. 4.000

ATH: þetta mót er eingöngu fyrir félagsmenn og er skráning hafin á golf.is