Hið geysivinsæla ECCO mót fer fram á Uppstigningardag, fimmtudaginn 14. maí. Mótið er eins og venjulega „sjálfsstætt“ mót eins og kemur fram í lýsingunni á Golfbox. Leiknar verða 18 holur og veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í höggleik og punktakeppni ásamt nándarverðlaunum á par 3 brautum.
Efstu 32 í punktakeppni með forgjöf og efstu 16 í höggleik án forgjafar komast svo áfram í útsláttarkeppnina sem leikin verður eftir holukeppnis fyrirkomulagi. Leikdaga í holukeppninni má sjá í mótaskránni á heimasíðu klúbbsins.
Skráning og allar nánari upplýsingar má sjá á Golfbox eða með því að smella hér
Mótanefnd

