Síðastliðinn fimmtudag hófst skráning í Meistaramót Nesklúbbsins 2012. Mótið fer fram dagana 30. júní – 7. júlí og má sjá flokkaskiptingu og leikdaga allra flokka inni á golf.is/Nesklúbburinn/skjöl.
Skráning í mótið stendur yfir til kl. 22.00 fimmtudaginn 28. júní í bókinni góðu í golfskálanum. Í bókinni má einnig sjá frekari upplýsingar um Meistaramótið.
![](/importing-old/albums/article/317_img_4862_20121806_21.jpg)