Skráning í lokamót Draumahringsins hófst í morgun

Nesklúbburinn

Laugardaginn 24. ágúst. fer fram lokamótið í Draumahringnum og hófst skráning á golf.is í morgun.  Eins og undanfarin ár hefur Draumahringurinn verið í fullum gangi í allt sumar en þá er tekið besta skor allra meðlima Nesklúbbsins á hverri holu í fyrirframákveðnum mótum.  Útkoman er hjá flestum ansi góð og hjá mörgum hinn sannkallaði Draumahringur.

Lokamótið er því síðasti möguleikinn til að bæta sig á hverri holu.  Þar fyrir utan er verður leikin 18 holu punktakeppni og verða veitt verðlaun fyrir 5 efstu sætin í sjálfu mótinu ásamt því að veitt verða verðlaun fyrir heildarkeppnina.

Allar nánari upplýsingar um mótið og skráningu i það á golf.is

Nánari upplýsingar um Draumahringinn og stöðu hvers og eins má sjá hér á síðunni undir „Draumahringurinn“ (neðst til vinstri).