Skráningu að ljúka fyrir Hreinsunardaginn

Nesklúbburinn

Það er komin góð skráning á hreinsunardaginn en okkur vantar nokkrar hendur í viðbót.  Skráningu lýkur kl. 12.00 12.00 á morgun, föstudag.  Í framhaldi af hreinsun ætlum við svo að hafa 9 holu punktakeppni þar sem ræst verður út af öllum teigum samtímis. 

Í ljósi aðstæðna verður örlítið breytt fyrirkomulag til að forðast miklar hópamyndanir. 

* Það þarf að skrá sig til þátttöku á hreinsunardeginum, skráningu lýkur á hádegi á föstudaginn.
* Til að skrá sig smellirðu á „skrá mig hér“ neðar á síðunni
* Vallarnefnd deilir niður verkefnum á skráða þátttakendur og tilkynnir á heimasíðu klúbbsins á föstudaginn hver gerir hvað
* Það verður ekki pylsupartý á pallinum þetta árið en boðið verður upp á samlokur að hreinsun lokinni
* Athugið að mikilvægt er að velja í skráningunni hvort þú ætlir að spila í mótinu eða ekki

Mæting er kl. 09.55 og eru allir félagsmenn hvattir til að mæta og opna sumarið með stæl.

Veðurspáin er fín þannig að mætum stundvíslega, gerum völlinn okkar og umhverfi hans enn glæsilegra og eigum saman góðan dag.

Fyrir skipulagninguna er nauðsynlegt að allir skrái sig sem ætla að mæta.  Til að skrá þig, smelltu þá á „skrá mig á hreinsunardaginn“ hér fyrir neðan.  

SKRÁ MIG Á HREINSUNARDAGINN

ATH: VÖLLURINN ER LOKAÐUR TIL KL: 16.30