Skráningu lýkur í dag fyrir bændaglímuna á laugardaginn

Nesklúbburinn

Bændaglíman, síðasta mót sumarsins fer fram á laugardaginn.  Veðurspáin fer batnandi og eru því meiri lýkur en minni á því að það verði hið fínasta golfveður.    Þetta er umfram allt skemmtimót þar sem félagsmenn koma saman, spila 18 holur, borða saman og kveðja þannig tímablið með stæl.  Það eru nokkur sæti laus og því um að gera að skrá sig sem fyrst því ekki verður tekið við skráningum eftir kl. 17.00 í dag.

Bændur í ár verða hjónin síkátu, þau  Ásgeir Bjarnason og Sigríður Hafberg og má því búast við skemmtilegri og um leið æsispennandi keppni.  Í mótslok verður svo sameiginlegur matur, sá síðasti þetta árið þar sem skálinn lokar formlega eftir þennan dag.

Dagskrá:

Bændur munu með aðstoð mótsstjórnar skipta þátttakendum í tvö lið.  4 verða saman í holli og verður leikið tveggja manna (tveir í hvoru liði) Texas-scramble holukeppni með fullri leikforgjöf.

1. Ræst verður út af öllum teigum stundvíslega kl. 13.00.
2. Leiknar verða 18 holur með forgjöf og það lið (bóndi) sem vinnur fleiri sigra samanlagt sigrar.
3. Allir leikmenn slá alltaf upphafshögg af teig.
4. Betra upphafshöggið er valið og þaðan slá báðir keppendur.  Sá leikmaður sem að á boltann þarf alltaf að slá fyrst.  Sá leikmaður sem að ekki á boltann sem að valinn er má stilla sínum bolta upp ca. 1 feti frá boltanum sem að valinn var, þó ekki nær holu.
5. Sömu leikreglur gilda á flötum.
6. Aldurstakmark er 18 ár.   
7. Liðið sem tapar bregður sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir sem að hefst strax og leik er lokið.

Þátttökugjald aðeins kr. 4.500 pr. mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur

Matseðill: Grillað lambalæri með bökuðum kartöflum, bernaise sósu og fersku salati.

ATH. Skráning fer nú fram á golf.is og lýkur fimmtudaginn 22. september.  ATH. Skráningin mun ekki gefa rétta mynd af ráshópum þar sem að liðsstjórar munu velja í lið og er því eingöngu til að skrá kylfinga til leiks.

ATH: ÞETTA ER MÓT FYRIR ALLA FÉLAGSMENN OG ER FYRST OG FREMST TIL GAMANS GERT.  MÆTUM ÞVÍ ÖLL OG KVEÐJUM TÍMABILIÐ SAMAN MEÐ STÆL