Steinn Baugur sigraði Opna COCA-COLA

Nesklúbburinn

Opna COCA-COLA, elsta opna golfmót á Íslandi fór fram á Nesvellinum í dag.  Nokkuð vindasamt var á meðan mótinu stóð, en sólin skein og voru aðstæður til golfleiks krefjandi en góðar.  Mótið hefur í gegnum árin verið ákaflega vel sótt og í ár voru 104 keppendur skráðir til leiks og komust færri að en vildu.  Haldið er í gamla hefð er varðar leikfyrirkomulagið þar sem leikinn er höggleikur með og án forgjafar í stað punktakeppni eins algengast er orðið í dag.  Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum auk nándarverðlauna á par 3 brautum og urðu helstu úrslit eftirfarandi:

Nándarverðlaun:

2./11. braut: Arnar Friðriksson, NK – 2,25 metrar frá holu
5./14. braut: Jón Andri Finnsson, GR – 1,66 metrar frá holu

Höggleikur án forgjafar:

1. sæti: Steinn Baugur Gunnarsson, NK – 71 högg
2. sæti: Kristinn Arnar Ormsson, NK – 74 högg
3. sæti: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR – 75 högg

Höggleikur með forgjöf:

1. sæti: Magndís María Sigurðardóttir, NK – 70 högg
2. sæti: Steinn Baugur Gunnarsson, NK – 70 högg
3. sæti: Jón Thorarensen, GÖ – 72 högg

Nánari úrslit má sjá á golf.is