Til stendur að opna inn á sumarflatir nú á föstudaginn. Hafa skal í huga að völlurinn er ennþá eingöngu opinn fyrir félagsmenn og eru kylfingar vinsamlegast beðnir um að ganga vel um völlinn sem er mjög viðkvæmur þessa dagana. Setjum torfurnar í förin og lögum boltaför á flötum og gerum völlinn þannig enn betri í sumar.
Ef veður leyfir verður haldið innanfélagsmót þriðjudaginn 1. maí. Mótið er hugsað sem fjáröflunarmót fyrir hjartastuðtæki sem klúbburinn mun fjárfesta í nú um mánaðarmótin. Leiknar verða 9 holur og kostar að lágmarki kr. 2.000 í mótið. Heimilt verður að leika fleiri en einn hring ef fólki langar til og munu þá bestu 9 holurnar gilda.
Endanleg ákvörðun um hvort mótið verður haldið verður tekin á sunnudag. Fólk er því hvatt til þess að fylgjast með hér á síðunni.