Sveitakeppni lokið

Nesklúbburinn Almennt

Sveitakeppni GSÍ lauk í dag sunnudag og unnu GR-sveitirnar tvöfalt í fyrstu deild eins og í fyrra.

Kvennasveit NK gerði góða hluti í 1. deild og spilaði um 5. sætið við Golfklúbb Suðurnesja. GS hafði betur í þeim leik og enda okkar konur því í 6. sæti og spila áfram í 1. deild að ári, sem er mjög góður árangur.

Karlasveitin vann góðan sigur á Golfklúbbnum Oddi í leik um 5. sætið í 2. deild og leikur áfram í sömu deild að ári.

Öll nánari úrslit má sjá á golf.is.