Tannhjólareglan

Nesklúbburinn

Dálitlar breytingar hafa orðið á tannhjólareglunni og eru félagsmenn og aðrir eru beðnir um að kynna sér innihald reglunnar sem hér eftir mun líta svona út:

 

 

 

–      Ráshópur sem kemur af 9. flöt hefur alltaf forgang á 10. teig.

–      Ef kylfingur/ar úr ráshópi hætta leik að loknum 9 holum eiga þeir sem eftir eru samt sem áður forgang.  Ætlast er þá til að reynt sé að fjölga í ráshópnum á álagstímum eins og hægt er og hafa þeir sem lengst hafa beðið (eiga fremsta boltann í rennunni) forgang í hópinn.

Dæmi 1: Ef tveir kylfingar eru að leika saman og á leið á 10. braut hafa þeir forgang á teiginn.  Ef bið er við teiginn skal eins og hægt er fjölga í ráshópnum (gera hann helst að fjögurra manna ráshópi) með þeim sem bíða og skal þá fyrst leita til þeirra sem lengst hafa beðið og svo koll af kolli.

Dæmi 2: Ef fjórir kylfingar eru að leika saman og á leið á 10. braut og einhver úr hópnum hættir hafa þeir sem eftir eru ennþá forgang á 10. teig.  Skal þá eins og í dæmi 1 reyna að fjölga í ráshópnum eins og hægt er.

–      Forgangur þýðir að þeir eru næsti ráshópur til að hefja leik.  Sé ráshópur á teignum að bíða eftir hefja leik eru þeir kylfingar sem eru á leið í gegn á eftir þeim sem fyrir eru á teignum.

–      Tannhjólareglan gildir ekki ef fólk gerir hlé á leik sínum

Notum almenna skynsemi, sýnum hvort öðru kurteisi og njótum þess að spila golf