Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri í dag. Þetta var í 30. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengt börnum. Styrkþegi í ár var Bergið sem er stuðnings og ráðgjafasetur sem veitir ungu fólki einstaklingsmiðaða og gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning á þeirra forsendum. Sigurvegari mótsins varð að lokum Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem sigraði Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur úr Golfklúbbnum Keili á 9. og síðustu holu. Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhentu þeir Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Jóhann Möller frá Arion banka Rut Sigurðardóttur fagstjóra hjá Berginu, ávísun að upphæð kr. 1.000.000.-
Úrslit urðu annars eftirfarandi:
- sæti: Tómas Eiríksson Hjaltested
- sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
- sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson
- sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir
- sæti: Logi Sigurðsson
- sæti: Aron Snær Júlíusson
- sæti: Hlynur Bergsson
- sæti: Dagbjartur Sigurbrandsson
- sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir
- sæti: Skarphéðinn Egill Þórisson

