Tveir Nesmenn í Landsliðið

Nesklúbburinn

Tíunda og síðasta viðmiðunarmótið í mótaröð LEK, Landssambands eldri kylfinga, var haldið í Borgarnesi síðastliðna helgi.  Fimm mót af þessum 10 sem haldin eru yfir keppnistímabilið telja svo til stiga til landsliðs þar sem sex kylfingar skipa lið.  Í karlaflokki 55 ára og eldri eru tvö landslið, með og án forgjafar.  Í flokki karla 55+ með forgjöf varð Eggert Eggertsson í fyrsta sæti og Friðþjófur Helgason í 4. sæti.  Landslið karla mun taka þátt í Evrópukeppninni í Zagreb í Króatíu 8. – 12. júlí næstkomandi.  Neskúbburinn óskar þeim félögum til hamingju með árangurinn.