Uppfærð rástímatafla í Meistaramótinu

Nesklúbburinn

Nú er búið að endurraða uppröðun ráshópa allra flokka miðað við þátttakendur í Meistaramótinu 2014. Einhverjar breytingar hafa átt sér stað í nokkrum flokkum og þá sérstaklega fyrstu fjóra dagana.  Það orsakast af breytingu á fjölda þátttakenda á milli ára í þeim flokkum sem leika þessa daga.  Reynt var eftir fremsta megni að hafa breytingarnar sem minnstar og um leið að allir flokkar myndu spila jafnt fyrir hádegi og eftir hádegi. Allir keppendur eru hvattir til að kynna sér þær breytingar hér á síðunni undir „Um NK / skjöl / 2014 uppfærð rástímatafla“.  Þar má sjá töfluna uppfærða en til þess að skjalið birtist rétt á skjánum er hægt að „hægri smella á músina og velja „rotate clockwise““.

Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Mótstjórn og í síma 561-1930