Rástímataflan hefur nú verið uppfærð miðað við þann fjölda þátttakenda sem skráður er í Meistaramótið 2013. Athugið að rástímum hefur hjá sumum flokkum verið flýtt. Töfluna má sjá hér á síðunni undir „um NK/skjöl“. Einnig er þar að finna skjal með holustaðsetningum fyrstu fjóra daga mótsins.