Upplýsingar fyrir Meistaramótið

Nesklúbburinn

Fyrir þá félagsmenn sem eru skráðir í Meistaramót Nesklúbbsins 2020 er gott að hafa eftirfarandi í huga:

* Allar upplýsingar fyrir mótið verða birtar hér á heimasíðu klúbbsins.  Það er því nauðsynlegt að kíkja reglulega hér inn og fylgjast með því hvort einhverjar nýjar upplýsingar eða að breytingar hafa hafi verið gefnar út.

* Á Golfbox heitir mótið  „Meistaramót Nesklúbbsins 2020“ sem heldur utan um allt mótið.  Þið getið smellt hér til þess að komast þangað – annars er það golf.is/mótaskrá/Nesklúbburinn

* Öll úrslit (skor) eru eingöngu birt á Golfbox og að sjálfsögðu á töflunni í skálanum.

* Rástímar eru birtir daglega á Golfbox. Þeir eru birtir eins fljótt og mögulegt er – sem þýðir í fyrsta lagi ca. 30 mín eftir að síðasti ráshópur hvers dags í mótinu hefur lokið leik.

* Áætlaða rástíma má sjá hér á síðunni undir „UmNk/skjol“.  Munið að þeir eru birtir með fyrirvara um breytingar.

*  Staðarreglur fyrir mótið verða birtar hér á vefnum síðar í dag.

* Við ætlum að vera með LIVE SCORE í skálanum allt mótið – við óskum eftir því að það verði alltaf einhver einn í hverju holli sem fyllir skor inn í símann eftir hverja holu.  Athugið að þetta er ekki nauðsynlegt en mun skapa góða stemmningu í klúbbhúsinu.

* Meistaramótið í ár er gríðarlega fjölmennt og það liggur fyrir að fyrstu þrír dagarnir munu taka tíma.  Það er því nauðsynlegt að við reynum öll í sameiningu að halda leikhraða.  Það gerum við best með því allir í hverjum ráshópi leggist á eitt við að halda í við næsta ráshóp á undan okkur – við komumst ekki hraðar en það.

* Það verður svo alltaf smá bið eftir 9 holur inni í skála þessa fyrstu þrjá daga.

Svo er bara umfram allt að taka jákvæðnina og góða skapið með okkur og njóta þess að spila í 56. Meistaramóti Nesklúbbsins.

Gangi ykkur vel