Úrslit í þriðja mótinu í októbermótaröðinni

Nesklúbburinn Almennt

Þriðja mótið í októbermótaröðinni var haldið í norðan vindi en ágætis veðri á Nesvellinum í gær.  Mótið var eins og venjulega í þessari mótaröð 9 holu punktakeppni og tóku 34 kylfingar þátt sem telst fín mæting miðað við árstíma.  Allur ágóði mótanna rennur óskiptur til æfingaferðar unglinga Nesklúbbsins fyrir næsta tímabil.  Úrslit mótsins í gær urðu eftirfarandi:

1. sæti – Friðrik J. Arngrímsson – 19 punktar

2. sæti – Ólafur A. Ólafsson – 19 punktar

3. sæti – Hinrik Þráinsson – 17 punktar

Friðrik var með fleiri punkta en Ólafur á síðustu sex holunum og hlýtur því fyrsta sætið.  Hinrik sem var einn þriggja kylfinga með 17 punkta, var með bestan árangur á síðustu sex holunum og hlýtur því þriðja sætið.  Uppfærð heildarstaða í mótaröðinni verður sett hér a vefinn í vikunni.  Næsta mót verður að öllu óbreyttu næskomandi sunnudag og verður auglýst nánar þegar nær dregur.