Eins og fram hefur komið verður vallarvarsla á Nesvellinum í sumar og þá sérstaklega á álagstímum. Búið er að ráða þrjá starfsmenn til að sinna þeirri vinnu og munu þeir hefja störf á allra næstu dögum. Vallarvarsla getur oft á tíðum verið vanþakklátt starf en hafa ber í huga að starfið er unnið eftir settum reglum frá stjórn klúbbsins. Til að átta sig á hlutverki vallarvarða á Nesvellinum í sumar þá er það eftirfarandi:
Hlutverk valarvarðar er að stjórna umferð um völlinn og sjá um að haldið sé eðlilegum leikhraða
Vallarvörður:
– Stýrir umferð á fyrsta teig, þ.m.t. tannhjólareglunni
– Sér um að farið sé út á 10 mínútna fresti
– Sér um að ráshópar séu fjögurra manna á álagstímum þegar hægt er
– Stjórnar leikhraða á vellinum
– Ekur um og hvetur ráshópa sem dragast afturúr
– Sér um að hleypt sé framúr ef á þarf að halda
Notum almenna skynsemi á fyrsta teig, sýnum hvort öðru virðingu og kurteisi og njótum þess að spila golf