Völlurinn er eingöngu opinn fyrir félagsmenn NESKLÚBBSINS

Nesklúbburinn

Af gefnu tilefni vegna fréttar sem birt var á heimasíðunni í gær viljum við taka það fram að völlurinn er eingöngu opinn fyrir félagsmenn NESKLÚBBSINS.

GSÍ kort, PGA kort, aðgangskort styrktaraðila (fyrirtækja), fjaraðild, klippikort eða mögulega eitthvað sem einhver telur sig hafa að þá gildir það ekki lengur.

Þetta er eingöngu gert til þess að takmarka umferð um völlinn.  Það hefur verið gríðarlegt álag á vellinum í sumar og ekki síst undanfarnar vikur.  Það er farið að kólna í veðri og hann því lengur að „jafna sig“.  Við viljum fyrir alla muni reyna að hafa hann opinn eins lengi og mögulegt er fyrir félagsmenn og reynum því að takmarka umferðina með þessu móti.

Vallarnefnd