Með hækkandi sól færst það í aukana að félagsmenn klúbbsins mæti út á völl og taki nokkrar holur. Það er að sjálfsögðu af hinu góða enda völlurinn sérstaklega settur í vetrarbúning á haustin og þannig undir það búinn að taka á móti sem flestum. Að leika vetrargolf er þó þeim skilyrðum háð að farið sé eftir þeim reglum sem settar …
Happdrætti og styrktarmót fyrir barna- og unglingastarfið
Ungir kylfingar í barna- og unglingastarfi Nesklúbbsins halda til Portúgal í æfingaferð dagana 1.-8. apríl. Af því tilefni er farið af stað bæði happdrætti og styrktarmót í Trackman til að hjálpa okkar efnilega fólki að standa straum af kostnaði við ferðina. Fjöldi glæsilegra vinninga er í boði í happdrættinu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og rennur allur ágóði …
Áttu ennþá inneign í golfhermi?
Kæru félagar. Eins og fram hefur komið og samþykkt var á aðalfundi í lok nóvember síðastliðnum að þá greiða félagsmenn nú kr. 5.000 sem eru inni í heildarupphæð félagsgjaldanna 2024. Fyrir þessar kr. 5.000 fá félagsmenn kr. 10.000 sem inneign í Trackman golfhermum klúbbsins á Nesvöllum, glæsilegri inniaðstöðu klúbbsins á Austurströnd 5. Athugið að þetta á eingöngu við félagsmenn 26 …
NK konur á Nesvöllum alla sunnudaga
Kæru kríur, Við hvetjum allar NK konur til að koma og pútta með okkur á sunnudögum í glæsilegri inniaðstöðu klúbbsins á Nesvöllum, Austurströnd 5. Undanfarnir sunnudagar hafa verið frábærir og það er sko nóg pláss fyrir fleiri. Fyrirkomulag eins og áður – bara mæta með pútter og kúlu á einhverntíman á milli 10 og 12. Hlökkum til að sjá þig …
Sumarstarfsfólk á golfvöllinn fyrir sumarið 2024
Kæru félagsmaður, Ertu að leita þér að sumarvinnu eða átt kannski barn, frænda eða frænku sem eru að leita sér að sumarvinnu. Nesklúbburinn óskar eftir að ráða sumarstarfsmenn á golfvöllinn fyrir sumarið 2024. Ráðningartímabil er frá maí – september og hentar því skólafólki vel. Vinnutími vallarstarfsmanna er frá kl. 07:00-15:00 og reikna má með að vinna einn dag um helgi …
Golfnámskeið í mars og apríl
Guðmundur Örn fer af stað með þrjú ný golfnámskeið fyrstu vikuna í mars. Námskeiðin verða að mestu byggð upp sem stöðvaþjálfun þar sem verður farið í fjölbreyttar æfingar í púttum, vippum, fleyghöggum, járnahöggum og drive-um. Námskeiðin fara fram á Nesvöllum, frábærri inniaðstöðu okkar á Austurströnd 5. Það er pláss fyrir fjóra nemendur á hverju námskeiði og því takmarkað framboð. Uppselt …
Frí kennsla á golfhermi á sunnudaginn: LEIÐRÉTT DAGSETNING
Í síðasta pósti frá okkur stóð að meðlimir Nesklúbbsins gætu fengið fría kennslu á golfhermi á sunnudaginn (28. september). Þetta átti að sjálfsögðu að vera á sunnudaginn (28. janúar).
Frí kennsla á golfhermi á sunnudaginn
Golfhermarnir okkar á Nesvöllum bjóða upp á ótal möguleika til afþreyingar og golf æfinga. Á sunnudaginn (28. janúar) býðst félögum Nesklúbbsins að kíkja við og fá stutta kennslu í því hvernig best er að æfa sig í golfhermunum endurgjaldslaust. Til þess að nýta sér þetta þarf að bóka tíma fyrirfram með því að hringja í síma 561-1910 á opnunartíma Nesvalla …
Laus pláss á golfnámskeið
Vegna forfalla losnaði eitt sæti á vetrarnámskeið hjá Magnúsi Mána sem hefst núna 6. febrúar. Um er að ræða 5 vikna námskeið (5 tímar) og er það kennt á þriðjudögum frá 18:00-18:55. Dagsetningarnar eru: Tími 1= 6.febrúar Tími 2= 13.febrúar Tími 3= 20.febrúar Tími 4= 27.febrúar Tími 5= 5.mars Skráning og frekari upplýsingar á netfanginu: magnus@nkgolf.is Einnig eru ennþá nokkur pláss …
Golfnámskeið í hádeginu í febrúar og mars
Guðmundur Örn, íþróttafræðingur og PGA golfkennaranemi, verður með 8 vikna golfnámskeið á Nesvöllum í hádeginu í febrúar og mars. Námskeiðin eru á milli 12:00 og 13:00 og er hægt að velja um að vera á þriðjudögum, fimmtudögum eða föstudögum. Það er pláss fyrir 4 nemendur á hverju námskeiði og því takmarkað framboð. Námskeiðin verða að mestu byggð upp sem stöðvaþjálfun …