Kæru kríur,
Einnarkylfukeppni NK kvenna verður haldin núna á þriðjudaginn, 10. júní.
Leiknar verða 9 holur með einni kylfu og pútter. Stórskemmtilegt innanfélagsmót fyrir allar konur með aðild í Nesklúbbnum.
Mæting er kl.17:00.
Ræst verður út á öllum teigum kl.17:50 og spilaðar 9 holur.
Athugið, hámarksfjöldi í mótinu eru 63 konur – skráning er hafin og það eru nokkur sæti laus, fyrstar koma – fyrstar fá.
Að móti loknu verður verðlaunafhending og kvöldverður í golfskálanum.
Verðlaun eru fyrir 1. – 3. sæti í punktakeppni, nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og lengsta upphafshögg á fyrstu braut.
Þátttökugjald kr. 5.500 og er innifalið samloka og gos fyrir hring.
Skráning fer fram inná golfbox eða með því að smella hér
Hlökkum til að sjá ykkur,
Kvennanefndin,
Inga Rós, Fjóla, Elsa og Elín