Formlegu kvennastarfi klúbbsins lauk í dag með Lokamóti kvenna sem haldið var á Nesvellinum í vætusömu en þó ágætis veðri. Mótið er punktamót og var leikið í tveimur forgjafarflokkum þar sem að veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki ásamt nándarverðlaunum og verðlaunum fyrir lengsta upphafshögg á 1. holu. Fín mæting var í mótið en 48 konur skráðu sig til leiks og voru það 46 sem luku leik. Að móti loknu var svo boðið upp á hádegisverð í skálanum og verðlaunaafhendingu þar sem m.a. var dregið úr skorkortum fjöldi vinninga. Einnig var Áslaugarbikarinn afhentur og var það Oddný Rósa Halldórsdóttir sem vann til hans í ár. Sumarið í ár hefur verið ákaflega viðburðarríkt hjá kvennanefnd klúbbsins og eiga þær stöllur, Þuríður, Bjargey og Guðrún heiður skilinn fyrir vel skipulagt og framkvæmt starf.
Helstu úrslit í mótinu eftirfarandi:
NÁNDARVERÐLAUN
2. HOLA – RANNVEIG LAXDAL – 2,25 METRA FRÁ HOLU
5. HOLA – MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR – 11,2 METRA FRÁ HOLU
LENGSTA UPPHAFSHÖGG Á FYRSTU BRAUT:
RAGNA INGÓLFSDÓTTIR
FORGJAFARFLOKKUR 25 – 36
3. SÆTI – HELGA MATTHILDUR JÓNSDÓTTIR – 21 PUNKTUR
2. SÆTI – MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR – 21 PUNKTUR
1. SÆTI – ELLEN RUT GUNNARSDÓTTIR – 22 PUNKTAR
FORGJAFARFLOKKUR 0 – 24
3. SÆTI – JÓHANNA GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR – 18 PUNKTAR
2. SÆTI – HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR – 20 PUNKTAR
1. SÆTI – ÁSLAUG EINARSDÓTTIR – 21 PUNKTUR