Sveit Nesklúbbsins í 3. sæti

Nesklúbburinn Almennt

Sveitakeppni í 1. deild eldri kylfinga fór fram í Vestmannaeyjum um helgina.  Leikið er í karla- og kvennaflokki og eru deildirnar skipaðar sveitum frá átta klúbbum.  Leikfyrirkomulagið er holukeppni og eru leiknar þrjár umferðir eftir útláttarfyrirkomulagi.  Nesklúbburinn átti sæti í 1. deild í flokkum beggja kynja og sendi að vanda sveitir til keppni.  Í karlaflokki fór svo að lokum að sveit Nesklúbbsins, undir liðsstjórn Þráins Rósmundssonar, endaði í 3. sæti eftir sannfærandi sigur á sveit Keilis 3,5 – 0,5.  Í kvennaflokki gekk ekki alveg jafnvel og eftir naumt tap 2 – 1 fyrir sveit Golfklúbbs Kjalar í dag endaði sveit Nesklúbbsins í áttunda sæti.  Árangur karlasveitarinnar er eftir því sem menn muna sá besti sem sveit Nesklúbbsins hefur náð í sveitakeppni eldri kylfinga.  Sveitirnar voru skipaðar eftirtöldum kylfingum:

Sveit Kvenna:

Ágústa Dúa Jónsdóttir, liðsstjóri

Oddný Rósa Halldórsdóttir

Þuríður Halldórsdóttir

Þyrí Valdimarsdóttir

Sveit karla:

Eggert Eggertsson

Einar Ingvar Jóhannesson

Friðþjófur Helgason

Jóhann Reynisson

Jónatan Ólafsson

Hjalti Arnarson

Sævar Egilsson

Þráinn Rósmundsson, liðsstjóri