Kick-off kvöld NK kvenna

Nesklúbburinn Póstlistar konur

Kæru NK Konur,

Nú fer að styttast í að golfsumarið hefjist. Sem þýðir að nú er komið að hinu árlega Kikk-off kvöldi okkar þriðjudaginn 7. maí kl.18.00.  (Athugið að þetta er viku síðar en áætlað var sökum framkvæmda í skálannum.)

Ætlunin er fyrst og fremst að koma saman, skemmta okkur og borða létta máltíð. Hámarksfjöldi eru 80 NK konur og því gott að skrá sig sem fyrst. Skráning er hafin inni á Golfbox og það þurfa allar að skrá sig þar inn sem ætla að mæta í síðasta lagi sunnudaginn 5. maí kl. 17.00.

Verðið er 5.500 kr.og greitt er í gegnum golfbox. Vipp-meistari og Pútt-drottning vetrarins verða krýndar og við verðum með óvæntan glaðning og uppákomu. Við förum yfir mót sumarsins og nýjungar sem kvennanefndin stendur fyrir ásamt því að renna yfir fyrirhugaðar breytingar á vellinum. o.fl. Við viljum með þessu bjóða ykkur NK-konum upp á að styrkja tengslin og sameinast um kröftugt spilasumar. Sérstaklega viljum við bjóða nýjar félagskonur velkomnar, en þetta kvöld er tilvalið til þess að kynnast og sjá hvað hið öfluga kvennastarf klúbbsins hefur upp á að bjóða.

Hlökkum til að sjá ykkur og hefja golfsumarið saman. kveðja, Fjóla, Elsa, Inga og Elín