Sjötta og síðasta stigamót unglinga á Arionbankamótaröðinni fór fram á Hamarsvelli hjá Golfklúbbi Borgarness um síðastliðna helgi. Leiknar voru 18 holur hvorn dag og var leikfyrirkomulagið að vanda höggleikur. Einungis einn kylfingur fór að þessu sinni frá Nesklúbbnum í mótið sem er óvenju lítið miðað við undanfarin mót. Helga Kristín Gunnlaugsdóttir keppti í flokki stúlkna 15 – 16 ára og endaði þar í fjórða sæti sem er frábær árangur. Að laugardeginum loknum var hún í 8. – 9. sæti en á sunnudaginn náði hún þriðja besta skori dagsins í sínum flokki og hífði hún sig þannig upp um fimm sæti. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Helgu Kristínu og verður spennandi að fylgjast með henni á næsta ári þar sem að hún á ennþá eitt ár eftir í þessum aldursflokki.