Sjöunda og síðasta kvennamót NK-kvenna fer fram á morgun, þriðjudaginn 25. júlí. Formið er keimlíkt og áður en þó með aðeins öðruvísi sniði. Við ætlum að biðja ykkur um að skrá ykkur líka í mótið á golfbox. Það er ekki nauðsynlegt en flýtir mikið fyrir okkur í allri eftirvinnslu í kringum mótið. Það verður ennþá skráning í kassanum góða í veitingasölunni og óháð því hvort þið skráið ykkur á golfbox þá þurfið þið líka að skrá ykkur í kassann og greiða í hann kr. 1000.- (með seðlum). Munum svo allar að setja núna aðildanúmerið líka á skráningarblaðið í kassanum.
Mótin eru eins og áður góður vettvangur fyrir bæði þær sem eru að stíga sín fyrstu skref í þátttöku í mótum sem og lengra komnar sem vilja lækka forgjöfina.
Hægt er að hefja leik frá kl. 08.00
Reglugerð fyrir þriðjudagsmótin má sjá nánar á nkgolf.is
Hlökkum til að sjá ykkur allar á morgun,
Hægt er að skrá sig á golfbox
Lokamótið sem fyrirhugað var þriðjudaginn 1. september hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna Covid ástands (engar hópamyndanir) – við munum halda það og látum ykkur vita hvenær og hvernig um leið og við vitum meir.
Sjáumst hressar á morgun,
Bryndís, Fjóla og Elsa