Öldungamótaröð LEK 2020 lauk núna síðastliðna helgi. Röð á öldungamótaröðinni gefur stig til landsliðs eldri kylfinga Golfsambands Íslands og er gaman að segja frá því að það voru tveir félagsmenn úr Nesklúbbnum sem spiluðu sig inn í landsliðið í flokki karla 55 ára og eldri. Það eru þeir Eggert Eggertsson og Gauti Grétarsson og óskum við þeim að sjálfsögðu til hamingju með frábæran árangur.