Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 15. skipti á Nesvellinum mánudaginn 1. ágúst nk. Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið(shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.
Venju samkvæmt er 11 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks. Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er sigurvegari síðasta árs og mætir að sjálfsögðu til þess að verja titilinn sem og að styrkja gott málefni.
DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða. Í ár er það BARNASPÍTALI HRINGSINS. Á Barnaspítala Hringsins er veitt fjölbreytt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri. Þverfagleg teymi, skipuð læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sinna skjólstæðingum ýmissa sérsviða. Þau veita margs konar sértæka þjónustu, m.a. við börn með sykursýki, krabbamein, hjartasjúkdóma, taugasjúkdóma, svefnvandamál, nýrnasjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, ofnæmissjúkdóma og ónæmissjúkdóma.sem nýtur góðs af en það hefur það megin markmið að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. sjá nánar á slf.is.
Þátttakendur 2011
Alfreð Brynjar Kristinsson GKG Klúbbmeistari GKG
Andri Þór Björnsson GR Klúbbmeistari GR
Axel Bóasson GK Íslandsmeistari karla í högleik
Birgir Leifur Hafþórsson GKG Shoot-out meistari 2010
Björgvin Sigurbergsson GK Klúbbmeistari GK
Ingi Rúnar Gíslason GKJ Klúbbmeistari GKJ
Karlotta Einarsdóttir NK Klúbbmeistari NK
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR Íslandsmeistari kvenna í höggleik og klúbbmeistari GR
Tinna Jóhannsdóttir GK Klúbbmeistari GK
Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu. Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir:
Nökkvi Gunnarsson NK Sigurvegari Opna Úrval-Útsýn
Þórarinn Gunnar Birgisson NK Sigurvegari Opna Radisson Blu – Hótel Saga
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson