Einvígið á Nesinu á mánudaginn

Nesklúbburinn Almennt

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 15. skipti á Nesvellinum mánudaginn 1. ágúst nk.  Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið(shoot-out).  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

Venju samkvæmt er 11 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks.  Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er sigurvegari síðasta árs og mætir að sjálfsögðu til þess að verja titilinn sem og að styrkja gott málefni.

DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða.  Í ár er það BARNASPÍTALI HRINGSINS. Á Barnaspítala Hringsins er veitt fjölbreytt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri. Þverfagleg teymi, skipuð læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sinna skjólstæðingum ýmissa sérsviða. Þau veita margs konar sértæka þjónustu, m.a. við börn með sykursýki, krabbamein, hjartasjúkdóma, taugasjúkdóma, svefnvandamál, nýrnasjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, ofnæmissjúkdóma og ónæmissjúkdóma.sem nýtur góðs af en það hefur það megin markmið að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. sjá nánar á slf.is.

Þátttakendur 2011

Alfreð Brynjar Kristinsson            GKG    Klúbbmeistari GKG

Andri Þór Björnsson                    GR       Klúbbmeistari GR

Axel Bóasson                              GK      Íslandsmeistari karla í högleik

Birgir Leifur Hafþórsson               GKG    Shoot-out meistari 2010

Björgvin Sigurbergsson                GK      Klúbbmeistari GK

Ingi Rúnar Gíslason                      GKJ     Klúbbmeistari GKJ

Karlotta Einarsdóttir                    NK      Klúbbmeistari NK

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir          GR       Íslandsmeistari kvenna í höggleik og klúbbmeistari GR

Tinna Jóhannsdóttir                      GK      Klúbbmeistari GK

Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu.  Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir:

Nökkvi Gunnarsson                     NK      Sigurvegari Opna Úrval-Útsýn

Þórarinn Gunnar Birgisson           NK      Sigurvegari Opna Radisson Blu – Hótel Saga

Sigurvegarar frá upphafi

1997    Björgvin Þorsteinsson

1998    Ólöf María Jónsdóttir

1999    Vilhjálmur Ingibergsson

2000    Kristinn Árnason

2001    Björgvin Sigurbergsson

2002    Ólafur Már Sigurðsson

2003    Ragnhildur Sigurðardóttir

2004    Magnús Lárusson

2005    Magnús Lárusson

2006    Magnús Lárusson

2007    Sigurpáll Geir Sveinsson

2008    Heiðar Davíð Bragason

2009    Björgvin Sigurbergsson

2010    Birgir Leifur Hafþórsson