Vegna eftirspurnar verður annað byrjendanámskeið í júní. Enn eru nokkur sæti laus og tekið er við skráningum á netfangið nokkvi@nkgolf.is
Námskeiðið er samtals 10 klukkustundir og verður kennt á 5 dögum, 2 klukkustundir í senn. Kennt verður á eftirfarandi dögum: þriðjudagur 5. júní kl. 18-20 – þriðjudagur 12 júní kl. 18-20 – fimmtudagur 14. júní kl. 18-20 – þriðjudagur 19. júní kl. 18-20 – þriðjudagur 26. júní kl. 18-20.
Námskeiðið fer fram á æfingasvæði Nesklúbbsins.
Kennarar: Nökkvi Gunnarsson og Steinn Baugur Gunnarsson
Fjöldi nemenda er takmarkaður við 12.
Á námskeiðinu verður farið yfir pútt, vipp, pitch, glompuhögg, sveifluna, helstu golfreglur, siðareglur og leikskipulag.
Markmið: Að nemendur læri helstu grunnatriði íþróttarinnar ásamt grunnatriðum í golfreglum og siðareglum. Að námskeiði loknu ættu nemendur að vera tilbúnir til að fara út á völl og spila.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er kennslugjald og æfingaboltar.
Verð: 19.000.- kr.
Skráning með tölvupósti á netfangið nokkvi@nkgolf.is